Fréttir
Bilun orsök hárra mćligilda í mćlistöđ Geislavarna í Reykjavík
Geislavarnir ríkisins hafa rekiđ fjórar síritandi, sjálfvirkar geislamćlistöđvar, eina í hverjum landsfjórđungi í mörg ár. Gögnin frá ţessum stöđvum eru birt á vefsíđu stofnunarinnar án tafar og án yfirferđar (sjá /gammastodvar).
Óvenjulega há gildi hafa birst í gögnum frá mćlistöđinni í Reykjavík í síđustu viku (síđan 28. febrúar (sjá mynd)). Geislavarnir ríkisins vakta ţessar mćlingar og hófu ţegar (29. febrúar) ađ kanna hvađ kynni ađ valda ţessum hćkkuđu gildum. Viđ mćlistöđina í Reykjavík er einnig starfrćkt mjög öflug sjálfvirk loftdćla sem dregur um 600 rúmmetra af lofti í gegnum loftsíu á hverri klukkustund. Skipt er um loftsíu einu sinni á sólarhring. Međ mćlingum á loftsíunum er hćgt ađ meta styrk geislavirka efna í andrúmsloftinu međ mikilli nákvćmni.

Eftir athugun á lögun toppanna sem sáust og samanburđ viđ niđurstöđur frá öđrum geislamćlum stofnunarinnar í Reykjavík á sama tíma sem og mćlingar á geislavirkum efnum í loftsíum frá ţessum tíma, er ţađ niđurstađa Geislavarna ríkisins ađ topparnir stafi ekki af aukinni geislun heldur sé um ađ rćđa bilun í rafeindabúnađi mćlistöđvarinnar.
Geislavarnir ríkisins hafa sett saman nánari lýsingu á matinu sem leiddi ađ ţessari niđurstöđu og geta áhugasamir sótt sér hana hér.
Nánari upplýsingar veitir :
Sigurđur Emil Pálsson, viđbúnađarstjóri Geislavarna ríkisins, sep@gr.is.