Fréttir

Kynning fimmtud. 20. nóv. á rannsóknum í geislavistfræði í tilefni af komu Dr. Brendu Howard, MBE

12.11.2003

Geislavarnir ríkisins hafa tekið þátt í rannsóknaverkefnum í geislavistfræði frá því að rannsóknstofa var sett upp við stofnunina haustið 1989.  Þetta starf hefur að mestu verið í íslenskum rannsóknaverkefnum, sem hafa að jafnaði verið unnin í samvinnu við íslenskar rannsóknastofnanir.  Þessi verkefni hafa verið innan ramma norrænna verkefna og tengsl við norræna vísindamenn hafa verið byggð upp á grunni þeirra.  Niðurstöður hafa til þessa einkum verið kynntar á erlendum vettvangi.

 

Tengsl við vísindamenn utan Norðurlanda hafa verið aukin á undanförnum árum.  Hæst ber þar samvinnu við Brendu Howard, Centre for Ecology and Hydrology í Bretlandi.  Hún hefur verið virk í rannsóknum í geislavistfræði í rúma tvo áratugi, stýrt 7 rammaverkefnum Evrópusambandsins, lagt til efni í nokkrar af handbókum Alþjóða­kjarn­orku­málastofnunarinnar (IAEA) og verið leiðandi í ýmsum alþjóðlegum rannsóknaverkefnum, t.d. á vegum AMAP (Arctic Monitoring and Assessment Programme).  Henni var nýlega veitt MBE orða breska ríkisins vegna framlags síns til vísinda.  Brenda Howard verður á Íslandi í næstu viku (viku 47) vegna sameiginlegra rannsóknaverkefna hennar og Geislavarna ríkisins.

 

Í tilefni af komu Brendu Howard bjóða Geislavarnir ríkisins til kynningarfundar á rannsóknum í geislavistfræði fimmtudaginn 20. nóvember n.k. kl. 16:15 og er miðað við að fundurinn standi til um 17:30.  Brenda Howard mun kynna stuttlega alþjóðlegar rannsóknir á þessu sviði og íslenskar rannsóknir síðasta áratugar verða kynntar lauslega og þær sem nú standa yfir.  Verulegur hluti kynningarinnar verður á ensku.

 

Þeir sem hafa áhuga á að sitja þennan fund eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Geislavarnir ríkisins eigi síðar en á hádegi þriðjudaginn 18. nóvember.  Fundarstaður verður valinn með hliðsjón af væntanlegum fjölda þátttakenda og tilkynntur þeim sem lýst hafa áhuga á þátttöku.

 

Þátttöku má tilkynna með tölvupósti í netfang: gr@gr.is og  í síma: 552 8200