Vöktun á styrk geislunar (gammageislunar) á 4 stöðum á Íslandi

Vöktunin er hluti viðbúnaðar gegn geislavá á Íslandi. Starfræktar eru 4 stöðvar sem mæla gammageislun. Niðurstöður mælinganna sýna náttúrulega bakgrunnsgeislun. Hún er breytileg bæði eftir stað og tíma, t.d. getur úrkoma skolað geislavirkum efnum úr lofthjúpi til jarðar. Íslenskt berg er mjög rýrt af geislavirkum efnum, það er þó mismunandi eftir svæðum hversu lítill styrkurinn er. Stöðvarnar myndu sýna marktæka aukningu ef mökkur geislavirkra efna bærist til Íslands frá kjarnorkuslysi erlendis.

Þessar mælingar eru samstarfsverkefni Geislavarna ríkisins og Veðurstofu Íslands. Geislamælar hafa verið settir upp á 4 sjálfvirkum mælistöðvum Veðurstofunnar (Reykjavík, Bolungarvík, Raufarhöfn og Höfn í Hornafirði). Línurit yfir styrk geislunarinnar eru birt á vefjum Geislavarna ríkisins (www.geislavarnir.is) og Veðurstofu Íslands (www.vedur.is), auk þess sem gögnin eru gerð aðgengileg erlendum samstarfsaðilum.

Línuritin sýna styrk geislunar undanfarna viku. Með því að smella á heiti mælistöðvar má fá nánari upplýsingar um mælingar á hverjum stað.

Mælingar á Höfn og Bolunarvík liggja tímabundið niðri vegna reglubundins viðhalds mæla Bolungarvík Reykjavík Höfn í Hornafirði Raufarhöfn
 

Bolungarvík

sjá nánar

Raufarhöfn

sjá nánar

Reykjavík

sjá nánar

Höfn í Hornafirði

sjá nánar