Varúðarmerkingar
og útlit tækja sem innihalda geislavirk efni
Samkvæmt reglugerðum um
notkun lokaðra og opinna geislalinda (nr. 811/2003 og 809/2003 sjá vefsíðu www.geislavarnir.is ) er þess krafist að
allur búnaður sem inniheldur geislavirk efni sé merktur með geislavarnarmerki
og fylgi honum upplýsingar um styrk efnanna og kjarntegund.
Útlit tækja með
geislavirkum efnum getur verið margskonar. Þar sem alls ekki má farga
geislavirkum efnum sem brotamálmi hafa Dönsku geislavarnirnar gefið út bækling
með myndum af mörgum þessara tækja og dreift honum til
brotamálmstöðva. Þessi bæklingur, sérstaklega
myndirnar, geta verið gagnlegar fyrir fleiri aðila. Slóð á bæklinginn er hér.
Um merkingar á færanlegum
mælitækjum sem nota geislavirk efni, gildir reglugerð 984/2000 um flutning á hættulegum
farmi sem vísar í alþjóðlegar ADR reglur. Á vefsíðu Geislavarna (undir
fræðsluefni \ notkun geislunar) er að finna fræðsluefni
á íslensku sem lýsir þessum reglum, fyrst og fremst er um að ræða tæki frá
fyrirtækinu Troxler).
Á vefsíðu IAEA
(alþjóðlegu kjarnorkumálastofnunarinnar) er að finna einfaldar upplýsingar á
ensku um merkingar
á umbúðum utan um geislavirk efni í flutningum.
Þessar upplýsingar eru úr
riti frá IAEA sem sérstaklega er ætlað viðbragðsaðilum, sem kynnu
að koma að slysstað til dæmis eftir árekstur, þar sem geislavirk efni hafa
verið í flutningum: IAEA Manual for first reponders to radiological emergency
Tekið er fram að
Geislavarnir ríkisins bera ekki ábyrgð á áreiðanleika upplýsinga á vefjum sem
vísað er til utan stofnunar og að eftirlit og framkvæmd laga um flutning
geislavirkra efna er á hendi Vinnueftirlits ríkisins en ekki Geislavarna.