Geislavarnir ríkisins
(kt: 540286-1169)
Geislavarnir ríkisins eru alhliða stjórnsýslu, þjónustu og rannsóknastofnun á sviði geislavarna.
Afgreiðslutími stofnunarinnar er frá klukkan 8:00-16:00 alla virka daga.
Hlutverk
Hlutverk Geislavarna er skilgreint í lögum nr. 44/2002.
Stofnunin hefur það hlutverk að annast öryggisráðstafanir gegn geislun frá geislavirkum efnum og geislatækjum.
Gildi
- ábyrgð - starfsemin sé skilvirk og hagkvæm
- traust - starfsemin einkennist af vandvirkni og faglegum vinnubrögðum
- umhyggja - viðskiptavinir njóti jafnræðis og þeim sé sýnd sanngirni
Framtíðarsýn
- Ríkisstofnun til fyrirmyndar og viðurkenndur þekkingarbrunnur.
Rammi um starfsemi Geislavarna ríkisins
- Lög nr. 44/2002 um geislavarnir
- Reglugerðir settar með stoð í lögunum.
- Fjárveitingar á fjárlögum og tekjur sem stofnunin aflar
- Samningur um samningsstjórnun undirritaður í október 1994
- Samningur um árangursstjórnun undirritaður í desember 1997
- Stefnumiðað árangursmat, innleitt 2004 og endurskoðað árlega.
- Virk gæðahandbók samkvæmt ISO- 9001:2008 staðli
Starfsemi
Starfsemi Geislavarna er skilgreind í 5. gr. laga nr. 44/2002 með síðari breytingum. Stofnunin annast:
1. Eftirlit og umsjón með að lögum þessum og reglugerðum og reglum settum samkvæmt þeim sé fylgt.
2. Hvers konar eftirlit og athuganir sem nauðsynlegar eru samkvæmt lögum þessum og reglugerðum eða reglum settum samkvæmt þeim.
4. Reglubundið mat á heildargeislaálagi almennings af starfsemi sem lög þessi taka til.
5. Reglubundið mat á geislaálagi sjúklinga af læknisfræðilegri geislun hérlendis.
6. Vöktun og rannsóknir á geislavirkum efnum í matvælum og umhverfi.
8. Rannsóknir á sviði geislavarna.
10. Nauðsynlega mælifræði og varðveislu landsmæligrunna vegna notkunar jónandi geislunar á Íslandi.
11. Samvinnu við erlendar stofnanir á sviði geislavarna og kjarnorkumála.
12. Önnur atriði er lúta að framkvæmd laga þessara og önnur verkefni á sviði geislavarna eftir nánari ákvörðun ráðherra.
Rekstur
Tekjur Geislavarna á árinu 2010 vorur um 125,7 milljónir króna, þar af:
- fjárveiting um 74,1 milljónir
- eftirlitsgjöld um 7,2 milljónir
- sértekjur um 44,4 milljónir, einkum vegna erlendra verkefna.
Gjöld Geislavarna á árinu 2010 voru um 120.1 milljónir króna og rekstrarafgangur ársins um 5.6 milljónir króna