Geislavarnir ríkisins

(kt: 540286-1169)

Geislavarnir ríkisins eru alhliða stjórnsýslu, þjónustu og rannsóknastofnun á sviði geislavarna.

Afgreiðslutími stofnunarinnar er frá klukkan 8:00-16:00 alla virka daga.


Starfsemi og rekstur Geislavarna

Fagleg viðfangsefni Geislavarna eru vegna geislunar frá geislatækjum annars vegar og geislavirkum efnum hins vegar. Þau eru: eftirlit, leyfisveitingar, geislaálag sjúklinga, fræðsla, mælifræði, viðbúnaður þ.m.t. vöktun, rannsóknir, ójónandi geislun og erlent samstarf.

Rekstrarleg viðfangsefni Geislavarna eru: fjármál, starfsmannamál, upplýsingamál og afgreiðsla.

Tekjur Geislavarna á árinu 2009 vorur um 125.6 milljónir króna, þar af:

  • fjárveiting um 89.1 milljónir
  • eftirlitsgjöld um 8.5 milljónir
  • sértekjur um 28 milljónir, einkum vegna erlendra verkefna.

Gjöld Geislavarna á árinu 2009 voru um 119.9 milljónir króna og rekstrarafgangur ársins um 5.7 milljónir króna

Hlutverk Geislavarna

Hlutverk Geislavarna ríkisins er að annast öryggisráðstafanir vegna geislunar og vinna að ábyrgri notkun hennar á Íslandi



Gildi Geislavarna eru:

  • fagleg hæfni - vandvirkni, traust og trúverðugleiki
  • ábyrgð - ábyrgt starfsfólk og ábyrg starfsemi
  • umhyggja - réttsýni, jafnrétti og þjónustulipurð.

Framtíðarsýn 2004 - 2008 - verður endurskoðað árið 2010

  • Fjárhagslegt sjálfstæði
  • Öflug rafræn þjónusta
  • Viðurkenndur þekkingarbrunnur
  • Fyrirmynd fyrir önnur smáríki


Markmið Geislavarna

Markmið Geislavarna ríkisins eru útfærð í stefnukorti sem byggir á hlutverki og gildum Geislavarna. (Stefnukort Geislavarna - pdf, útgáfa: mars 2008).

Rammi um starfsemi Geislavarna ríkisins

  • Lög nr. 44/2002 um geislavarnir
  • Reglugerðir settar með stoð í lögunum.
  • Fjárveitingar á fjárlögum og tekjur sem stofnunin aflar
  • Samningur um samningsstjórnun undirritaður í október 1994
  • Samningur um árangursstjórnun undirritaður í desember 1997
  • Stefnumiðað árangursmat, innleitt 2004 og endurskoðað árlega.
  • Virk gæðahandbók samkvæmt ISO- 9000 staðli
 

 

Fréttir

28.7.2010 Fréttir : Segulsvið frá spennustöðvum og raflögnum

Að undanförnu hafa Geislavörnum ríkisins borist margar fyrirspurnir um segulsvið frá spennustöðvum og raflögnum. Segulsvið með 50 riða tíðni myndast þegar rafstraumur rennur um raftæki og rafmagnsleiðslur.

Lesa meira

 

22.6.2010 Fréttir : Venjuleg farsímanotkun eykur ekki líkur á heilaæxlum

Nýlega voru birtar niðurstöður úr mjög stórri alþjóðlegri rannsókn á notkun farsíma. Samkvæmt henni eykur venjuleg farsímanotkun ekki líkur á myndun heilaæxla. Í rannsókninni kom á óvart að þeir sem alls ekki töluðu í farsíma virtust örlítið líklegri til að fá heilaæxli.

Lesa meira

 

8.6.2010 Fréttir : Hefur orðið breyting á ljósabekkjanotkun grunnskólanema?

Samkvæmt nýrri könnun Capacent-Gallup segjast mun færri grunnskólanemar hafa notað ljósbekki síðustu 12 mánuði en áður. Fækkunin er þó aðallega í hópi þeirra sem nota bekki sjaldan. Lesa meira
 

1.6.2010 Fréttir : Notendur ljósabekkja fara sjaldnar í ljós

Samkvæmt árlegum könnunum Capacent Gallup hefur þeim fækkað verulega sem fara oft í ljósabekki.

Lesa meira