Lög og reglugerðir
Lög um geislavarnir, nr. 44/2002. Markmið með lögum nr. 44/2002 um geislavarnir var aðlögun íslenskrar löggjafar á sviði geislavarna og framkvæmdar hennar að tilskipunum Evrópu Sambandsins á sviði geislavarna og framkvæmdar þeirra í aðildarríkjum sambandsins. Aukin áhersla er nú lögð á ójónandi geislun, viðbúnað, vöktun og læknisfræðilega geislun.
- Taka einnig til ójónandi geislunar
- Krafa um faggildingu tiltekinna þátta í starfsemi Geislavarna
- Heimilt að semja um framkvæmd við aðila sem uppfylla faglegar kröfur
- Í stað stjórnar kemur geislavarnaráð sem veitir faglega ráðgjöf
- Innflutningur geislatækja ekki lengur háður leyfi
- Krafa um réttlætingu nýrrar starfsemi
- Aukin ábyrgð eiganda m.a. krafa um ábyrgðarmann, innra eftirlit og skipulagningu viðbragða við geislaslysum
- Aukin ábyrgð lækna
- Krafa um réttlætingu sérhverrar læknisfræðilegrar geislunar
- Öll geislun eins lítil og unnt er með tilliti til markmiðs geislunar hverju sinni
- Krafa um gæðaeftirlit og gæðatryggingu við læknisfræðilega notkun geislunar
Lög nr. 28/2008 um breytingar á lögum nr. 44/2002 taka gildi 1. janúar 2009. Markmið laga nr. 28/2008 er einkum að einfalda framkvæmd eftirlits stofnunarinnar og draga úr reglubundnu tæknilegu eftirliti en auka áherslu á ábyrgð notenda, virk gæðakerfi og mat á geislaálagi sjúklinga. Einnig er aukin áhersla á mælifræði og viðbúnað.
Breyttar áherslur í eftirliti frá og með 2003.
- Eftirlit með notkun tækja og efna í stað eftirlits með tækjum og efnum.
- Úttektir á innra eftirliti og rannsóknir á geislaálagi sjúklinga í stað tæknilegs eftirlits.
- Eftirlitsgjald í stað árlegs gjalds.
- Eftirlitsgjöld lækka um 2 milljónir.
Breyttar áherslur í eftirliti frá og með 2009.
Áherslum í eftirliti Geislavarna verður breytt í samræmi við áherslur laga nr. 28/2008.
Hér má finna lög og reglugerðir sem varða Geislavarnir ríkisins. Það skal þó tekið fram að prentuð útgáfa þessa efnis gildir alltaf fram yfir vefasíðurnar ef vafaatriði koma upp.
Lög um geislavarnir
44/2002 Lög um geislavarnir
28/2008 Um breytingar á lögum um geislavarnir
Reglugerðir sem varða hámörk geislunar
Reglugerðir sem varða röntgentæki
626/2003
REGLUGERÐ um geislavarnir við notkun tannröntgentækja.
Reglugerðir sem varða geislavirk efni
811/2003
REGLUGERÐ um geislavarnir við notkun lokaðra geislalinda.
809/2003
REGLUGERÐ um geislavarnir við notkun opinna geislalinda.
920/2003
REGLUGERÐ um (1.) breytingu á reglugerð nr. 809/2003 um geislavarnir við notkun opinna geislalinda.
516/1993
REGLUGERÐ um innflutning á reykskynjurum er innihalda geislavirk efni.
Reglugerðir sem varða leysitæki, sólarlampa
810/2003
REGLUGERÐ um sólarlampa.
120/1998
REGLUGERÐ um leysitæki.