Lög og reglugerðir

Lög um geislavarnir, nr. 44/2002. Markmið með lögum nr. 44/2002 um geislavarnir var aðlögun íslenskrar löggjafar á sviði geislavarna og framkvæmdar hennar að tilskipunum Evrópu Sambandsins á sviði geislavarna og framkvæmdar þeirra í aðildarríkjum sambandsins. Aukin áhersla er lögð á ójónandi geislun, viðbúnað, vöktun og læknisfræðilega geislun.

  • Taka einnig til ójónandi geislunar
  • Krafa um faggildingu tiltekinna þátta í starfsemi Geislavarna
  • Heimilt að semja um framkvæmd við aðila sem uppfylla faglegar kröfur
  • Í stað stjórnar kemur geislavarnaráð sem veitir faglega ráðgjöf
  • Innflutningur geislatækja ekki lengur háður leyfi
  • Krafa um réttlætingu nýrrar starfsemi
  • Aukin ábyrgð eiganda m.a. krafa um ábyrgðarmann, innra eftirlit og skipulagningu viðbragða við geislaslysum
  • Aukin ábyrgð lækna
  • Krafa um réttlætingu sérhverrar læknisfræðilegrar geislunar
  • Öll geislun eins lítil og unnt er með tilliti til markmiðs geislunar hverju sinni
  • Krafa um gæðaeftirlit og gæðatryggingu við læknisfræðilega notkun geislunar

Lög nr. 28/2008 um breytingar á lögum nr. 44/2002 tóku gildi 1. janúar 2009. Markmið laga nr. 28/2008 er einkum að einfalda framkvæmd eftirlits stofnunarinnar og draga úr reglubundnu tæknilegu eftirliti en auka áherslu á ábyrgð notenda, virk gæðakerfi og mat á geislaálagi sjúklinga. Einnig er aukin áhersla á mælifræði og viðbúnað.

Lög nr. 82/2010 um breytingar um lögum nr. 44/2002 tóku gildi 1. janúar 2011. Með breytingunum verður einstaklingum yngri en 18 ára óheimil notkun af sólarlömpum, í öðrum tilgangi en læknisfræðilegum, á stöðum sem starfsleyfi hafa samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Hér má finna lög og reglugerðir sem varða Geislavarnir ríkisins. Það skal þó tekið fram að prentuð útgáfa þessa efnis gildir alltaf fram yfir vefasíðurnar ef vafaatriði koma upp.

 

Lög um geislavarnir

44/2002 Lög um geislavarnir

28/2008 Um breytingar á lögum um geislavarnir

82/2010 Um breytingar á lögum um geislavarnir


Reglugerðir sem varða hámörk geislunar

627/2003
REGLUGERÐ um hámörk geislunar starfsmanna og almennings vegna starfsemi þar sem notuð er jónandi geislun.

Reglugerðir sem varða röntgentæki

640/2003
REGLUGERÐ um geislavarnir vegna notkunar röntgentækja, annarra en tannröntgentækja, við læknisfræðilega geislun.

626/2003
REGLUGERÐ um geislavarnir við notkun tannröntgentækja.

Reglugerðir sem varða geislavirk efni

811/2003
REGLUGERÐ um geislavarnir við notkun lokaðra geislalinda.

809/2003
REGLUGERÐ um geislavarnir við notkun opinna geislalinda.

920/2003
REGLUGERÐ um (1.) breytingu á reglugerð nr. 809/2003 um geislavarnir við notkun opinna geislalinda.

516/1993
REGLUGERÐ um innflutning á reykskynjurum er innihalda geislavirk efni.

Reglugerðir sem varða leysitæki, sólarlampa

810/2003
REGLUGERÐ um sólarlampa.

954/2011
REGLUGERÐ um innflutning og notkun leysa og leysibenda

 

 

Fréttir

6.2.2012 Fréttir : Bilun orsök hárra mæligilda í mælistöð Geislavarna í Reykjavík

Undanfarna viku hafa sést nokkrir toppar í mæligögnum frá síritandi og sjálfvirkri geislamælistöð Geislavarna í Reykjavík. Þar sem gögnin eru birt á heimasíðu Geislavarna án tafar hafa þau ekki verið yfirfarin fyrir birtingu, og því geta þau sýnt niðurstöður sem hafa ekkert með dreifingu geislavirkra efna í umhverfi að gera. Sú var reyndin í síðustu viku, en athugun á mæligögnunum og aðrar mælingar sem gerðar voru í Reykjavík á sama tíma sýna ekki aukningu geislunar. Það er niðurstaða Geislavarna að hér hafi verið um bilun í rafeindabúnaði að ræða. Stöðin verður tekin niður og yfirfarin á næstu dögum. Lesa meira
 

23.1.2012 Fréttir : Ný skýrsla: Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010

Geislavarnir ríkisins hafa birt skýrslu þar sem kynntar eru niðurstöður mælinga stofnunarinnar á styrk geislavirks sesíns í andrúmslofti, úrkomu, mjólk, lambakjöti, sjó, fiski og þangi á árinu 2010. Styrkur efnisins er í öllum tilvikum langt neðan þeirra marka sem miðað er við í milliríkjaviðskiptum með matvæli. Skýrsluna "Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010, GR 11:04" má nálgast hér á PDF formi. Lesa meira
 

16.1.2012 Fréttir : Aukning tölvusneiðmyndarannsókna veldur áhyggjum Norrænna geislavarnastofnana

Tölvusneiðmyndarannsóknir eru meðal öflugustu verkfæra læknisfræðinnar og hefur notkun þeirra aukist mjög á Norðurlöndum undanfarin ár. Þeim getur fylgt viss áhætta og því leggja norrænar geislavarnastofnanir áherslu á, í sameiginlegri yfirlýsingu, að ekki séu framkvæmdar aðrar rannsóknir en þær sem líklegar eru til að hafa jákvæð áhrif á heilsu sjúklinga. Lesa meira
 

10.1.2012 Fréttir : Aukið samstarf Samtaka evrópskra geislavarnastofnana við framleiðendur tölvusneiðmyndatækja.

HERCA, Evrópusamtök geislavarnastofnana og COCIR, Evrópusamtök iðnfyrirtækja á sviði heilbrigðistækni, gáfu í gær (9. janúar 2012) út sameiginlega yfirlýsingu um aukið samstarf, með það að markmiði að draga úr geislaálagi sjúklinga við tölvusneiðmyndarannsóknir. Yfirlýsinguna má finna hér. Lesa meira