Geislavarnir ríkisins

(kt: 540286-1169)

Geislavarnir ríkisins eru alhliða stjórnsýslu, þjónustu og rannsóknastofnun á sviði geislavarna.

Afgreiðslutími stofnunarinnar er frá klukkan 8:00-16:00 alla virka daga.


Hlutverk

Hlutverk Geislavarna er skilgreint í lögum nr. 44/2002.

Stofnunin hefur það hlutverk að annast öryggisráðstafanir gegn geislun frá geislavirkum efnum og geislatækjum.



Gildi

  • ábyrgð - starfsemin sé skilvirk og hagkvæm
  • traust - starfsemin einkennist af vandvirkni og faglegum vinnubrögðum
  • umhyggja - viðskiptavinir njóti jafnræðis og þeim sé sýnd sanngirni

Framtíðarsýn

  • Ríkisstofnun til fyrirmyndar og viðurkenndur þekkingarbrunnur.


 Rammi um starfsemi Geislavarna ríkisins

  • Lög nr. 44/2002 um geislavarnir
  • Reglugerðir settar með stoð í lögunum.
  • Fjárveitingar á fjárlögum og tekjur sem stofnunin aflar
  • Samningur um samningsstjórnun undirritaður í október 1994
  • Samningur um árangursstjórnun undirritaður í desember 1997
  • Stefnumiðað árangursmat, innleitt 2004 og endurskoðað árlega.
  • Virk gæðahandbók samkvæmt ISO- 9001:2008 staðli

Starfsemi

Starfsemi Geislavarna er skilgreind í 5. gr. laga nr. 44/2002 með síðari breytingum. Stofnunin annast:

1. Eftirlit og umsjón með að lögum þessum og reglugerðum og reglum settum samkvæmt þeim sé fylgt.

2. Hvers konar eftirlit og athuganir sem nauðsynlegar eru samkvæmt lögum þessum og reglugerðum eða reglum settum samkvæmt þeim.

3. Eftirlit með geislaálagi starfsmanna vegna jónandi geislunar og halda skrá yfir niðurstöður einstaklingsbundins eftirlits fyrir hvern einstakan starfsmann.

4. Reglubundið mat á heildargeislaálagi almennings af starfsemi sem lög þessi taka til.

5. Reglubundið mat á geislaálagi sjúklinga af læknisfræðilegri geislun hérlendis.

6. Vöktun og rannsóknir á geislavirkum efnum í matvælum og umhverfi.

7. Fræðslu um geislavarnir fyrir starfsfólk er vinnur við geislun jafnframt því að miðla upplýsingum til almennings og fjölmiðla.

8. Rannsóknir á sviði geislavarna.

9. Geislunarlegan þátt viðbúnaðar við hvers kyns geislavá, m.a. greiningu á ógn af hennar völdum, samhæfingu viðbúnaðar við alþjóðleg viðmið, rekstur viðbúnaðar- og geislamælikerfa og annað því tengt.

10. Nauðsynlega mælifræði og varðveislu landsmæligrunna vegna notkunar jónandi geislunar á Íslandi.

11. Samvinnu við erlendar stofnanir á sviði geislavarna og kjarnorkumála.

12. Önnur atriði er lúta að framkvæmd laga þessara og önnur verkefni á sviði geislavarna eftir nánari ákvörðun ráðherra.

Rekstur

Tekjur Geislavarna á árinu 2010 vorur um 125,7 milljónir króna, þar af:

  • fjárveiting um 74,1 milljónir
  • eftirlitsgjöld um 7,2 milljónir
  • sértekjur um 44,4 milljónir, einkum vegna erlendra verkefna.

Gjöld Geislavarna á árinu 2010 voru um 120.1 milljónir króna og rekstrarafgangur ársins um 5.6 milljónir króna

 

 

Fréttir

6.2.2012 Fréttir : Bilun orsök hárra mæligilda í mælistöð Geislavarna í Reykjavík

Undanfarna viku hafa sést nokkrir toppar í mæligögnum frá síritandi og sjálfvirkri geislamælistöð Geislavarna í Reykjavík. Þar sem gögnin eru birt á heimasíðu Geislavarna án tafar hafa þau ekki verið yfirfarin fyrir birtingu, og því geta þau sýnt niðurstöður sem hafa ekkert með dreifingu geislavirkra efna í umhverfi að gera. Sú var reyndin í síðustu viku, en athugun á mæligögnunum og aðrar mælingar sem gerðar voru í Reykjavík á sama tíma sýna ekki aukningu geislunar. Það er niðurstaða Geislavarna að hér hafi verið um bilun í rafeindabúnaði að ræða. Stöðin verður tekin niður og yfirfarin á næstu dögum. Lesa meira
 

23.1.2012 Fréttir : Ný skýrsla: Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010

Geislavarnir ríkisins hafa birt skýrslu þar sem kynntar eru niðurstöður mælinga stofnunarinnar á styrk geislavirks sesíns í andrúmslofti, úrkomu, mjólk, lambakjöti, sjó, fiski og þangi á árinu 2010. Styrkur efnisins er í öllum tilvikum langt neðan þeirra marka sem miðað er við í milliríkjaviðskiptum með matvæli. Skýrsluna "Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010, GR 11:04" má nálgast hér á PDF formi. Lesa meira
 

16.1.2012 Fréttir : Aukning tölvusneiðmyndarannsókna veldur áhyggjum Norrænna geislavarnastofnana

Tölvusneiðmyndarannsóknir eru meðal öflugustu verkfæra læknisfræðinnar og hefur notkun þeirra aukist mjög á Norðurlöndum undanfarin ár. Þeim getur fylgt viss áhætta og því leggja norrænar geislavarnastofnanir áherslu á, í sameiginlegri yfirlýsingu, að ekki séu framkvæmdar aðrar rannsóknir en þær sem líklegar eru til að hafa jákvæð áhrif á heilsu sjúklinga. Lesa meira
 

10.1.2012 Fréttir : Aukið samstarf Samtaka evrópskra geislavarnastofnana við framleiðendur tölvusneiðmyndatækja.

HERCA, Evrópusamtök geislavarnastofnana og COCIR, Evrópusamtök iðnfyrirtækja á sviði heilbrigðistækni, gáfu í gær (9. janúar 2012) út sameiginlega yfirlýsingu um aukið samstarf, með það að markmiði að draga úr geislaálagi sjúklinga við tölvusneiðmyndarannsóknir. Yfirlýsinguna má finna hér. Lesa meira