Skipurit

15.5.2003

Skipurit Geislavarna, útgáfa 5.0

Skipurit Geislavarna ríkisins frá 1.6.2009

Skipurit Geislavarna ríkisins til 1.6.2009

Í 4. grein laga nr. 44/2002 um geislavarnir segir: "Geislavarnir ríkisins er stofnun undir yfirstjórn heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra".

Í 4. grein laga nr. 44/2002 segir einnig:"Forstjóri fer með stjórn stofnunarinnar, gætir þess að stofnunin starfi í samræmi við gildandi lög og reglugerðir á hverjum tíma og ber ábyrgð á daglegum rekstri".

Í 6. grein laga nr. 44/2002 segir: " Ráðherra skipar geislavarnaráð til fjögurra ára í senn, en það er fagleg ráðgjafanefnd Geislavarna ríkisins um geislavarnir. Skal geislavarnaráð skipað þremur mönnum með sérþekkingu á starfssviði stofnunarinnar ".

Markmiðið með skipuriti stofnunarinnar er að samvinna starfsmanna við úrlausn faglegra viðfangsefna sé sem mest og að þekking þeirra og reynsla nýtist stofnuninni sem best. Skipuritið á að leiða til skilvirkni og sveigjanleika í starfsemi stofnunarinnar.

 

 

Fréttir

6.2.2012 Fréttir : Bilun orsök hárra mæligilda í mælistöð Geislavarna í Reykjavík

Undanfarna viku hafa sést nokkrir toppar í mæligögnum frá síritandi og sjálfvirkri geislamælistöð Geislavarna í Reykjavík. Þar sem gögnin eru birt á heimasíðu Geislavarna án tafar hafa þau ekki verið yfirfarin fyrir birtingu, og því geta þau sýnt niðurstöður sem hafa ekkert með dreifingu geislavirkra efna í umhverfi að gera. Sú var reyndin í síðustu viku, en athugun á mæligögnunum og aðrar mælingar sem gerðar voru í Reykjavík á sama tíma sýna ekki aukningu geislunar. Það er niðurstaða Geislavarna að hér hafi verið um bilun í rafeindabúnaði að ræða. Stöðin verður tekin niður og yfirfarin á næstu dögum. Lesa meira
 

23.1.2012 Fréttir : Ný skýrsla: Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010

Geislavarnir ríkisins hafa birt skýrslu þar sem kynntar eru niðurstöður mælinga stofnunarinnar á styrk geislavirks sesíns í andrúmslofti, úrkomu, mjólk, lambakjöti, sjó, fiski og þangi á árinu 2010. Styrkur efnisins er í öllum tilvikum langt neðan þeirra marka sem miðað er við í milliríkjaviðskiptum með matvæli. Skýrsluna "Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010, GR 11:04" má nálgast hér á PDF formi. Lesa meira
 

16.1.2012 Fréttir : Aukning tölvusneiðmyndarannsókna veldur áhyggjum Norrænna geislavarnastofnana

Tölvusneiðmyndarannsóknir eru meðal öflugustu verkfæra læknisfræðinnar og hefur notkun þeirra aukist mjög á Norðurlöndum undanfarin ár. Þeim getur fylgt viss áhætta og því leggja norrænar geislavarnastofnanir áherslu á, í sameiginlegri yfirlýsingu, að ekki séu framkvæmdar aðrar rannsóknir en þær sem líklegar eru til að hafa jákvæð áhrif á heilsu sjúklinga. Lesa meira
 

10.1.2012 Fréttir : Aukið samstarf Samtaka evrópskra geislavarnastofnana við framleiðendur tölvusneiðmyndatækja.

HERCA, Evrópusamtök geislavarnastofnana og COCIR, Evrópusamtök iðnfyrirtækja á sviði heilbrigðistækni, gáfu í gær (9. janúar 2012) út sameiginlega yfirlýsingu um aukið samstarf, með það að markmiði að draga úr geislaálagi sjúklinga við tölvusneiðmyndarannsóknir. Yfirlýsinguna má finna hér. Lesa meira