Gæðakerfi Geislavarna

Gæðakerfi Geislavarna er byggt upp samkvæmt kröfum ISO 9001:2008.
Gæðakerfi Geislavarna er lýst í virkri og útgáfustýrðri rafrænni gæðahandbók sem er aðgengileg öllum starfsmönnum. Gæðakerfið byggir meðal annars á virku ábendingakerfi (sjá Ábendingar hér að ofan) sem tekur á öllum innri og ytri ábendingum sem varða starfsemi Geislavarna.

Gæðakerfi Geislavarna er vottað af bresku staðlastofnuninni, BSI (British Standard Institute). Kerfið var fyrst vottað í október árið 2008 (frétt) og var síðan endurvottað í desember 2009 (frétt).

Vottunarskýrteini árið 2008

Vottunarskýrteini árið 2009

Stefna Geislavarna og stefnukort

Gæðastefna

? Að uppfylla opinberar kröfur sem gilda um rekstur Geislavarna hverju sinni

? Að fylgst sé með alþjóðlegir þróun geislavarna og tekið tillit til hennar í starfsemi stofnunarinnar

? Að hafa viðhalda vottuðu stjórnkerfi (gæðakerfi) samkvæmt ISO 9001:2008.

? Að útfæra handbók þ.a. starfsemi stofnunarinnar sé stýrt með skýrum og einföldum verklagsreglum og vinnulýsingum sem starfsmenn hafi greiðan aðgang að.

? Að líta á ábendingar, ytri sem innri, sem tækifæri til stöðugra endurbóta stjórnkerfis.

? Að efla fræðslu um geislavarnir með útgáfu fræðsluefnis og frétta á vef stofnunarinnar og með námskeiðum.

? Að starfsmenn stofnunarinnar taki með virkum og leiðandi hætti þátt í alþjóðlegu samstarfi.

 

Starfsmannastefna

? Að gefa starfsfólki tækifæri til að auka þekkingu sína með aukinni símenntun

? Faglega krefjandi verkefni og gott starfsumhverfi

? Fjölskylduvænt umhverfi - sveigjanleiki í vinnutíma

? Jafnrétti kynjanna til kjara og stöðu

? Að vinna að vellíðan starfsmanna með því að taka á málum sem upp koma

? Styrkja starfsmannafélag Geisalvarna

? Stuðla að heilbrigði starfsmanna t.d. með því að hvetja til íþróttaiðkunar eða annars.

? Öflugt upplýsingakerfi (innranet, bókasafn )

? samkeppnishæfum starfskjörum

? þægilegu og hvetjandi starfsumhverfi

? umbun í samræmi við árangur og ábyrgð

? þjálfun, endurmenntun og símenntun.

? jákvæðum samskiptum og samstarfi starfsmanna ? árlegum starfsmannaviðtölum

? Að starfsmenn hafi góða vinnuaðstöðu ?

 

Vinnuumhverfi og innviðir Geislavarnir leggja áherslu á að hafa vinnuumhverfi starfsmanna þægilegt og hvetjandi til jákvæðra samskipta og góðs árangurs í starfi. Geislavarnir hafa yfir að ráða góðu bókasafni og vel útbúnum rannsóknastofum. Mikil áhersla er lögð á öflugt upplýsingakerfi (SKR-099 Innrantet og SKR-055 Vefkerfi) Starfsmenn geta komið ábendingum og athugasemdum á framfæri hvernær sem er, t.d. með því að senda ábendingar sem varða vinnuumhverfi (VER-005 Ábendingar og umbætur).

Geislavarnir framkvæma árlega starfsánægjukönnun þar sem starfsmenn eru meðal annars spurðir um vinnuumhverfi sitt (sjá undir mælingar á starfsemi, VER-042). Starfsmenn geta einnig komið fram með óskir um betri aðbúnað í árlegum starfsmannaviðtölum skv. VER-013 Mannauður og EYÐ-007 Starfsmannasamtöl, eða borið þær upp við yfirmann eða forstjóra þess utan.

 

Fjármálastefna

? Að rekstur stofnurinnar sé innan þess ramma sem fjárveiting og sértekjur setja starfseminni hverju sinni. Geislavarnir setja markmið og mælingar fyrir hvert ár. Markmið byggja á stefnu hér að ofan og er vistað í SKR-112 Skorkort.

 

 

 

Mælingar á starfsemi

Geislavarnir notar markvisst stefnumiðað árangursmat, (Balanced Scorecard, BSC) til að mæla starfsemi með það að markmiði að bæta þjónustu við viðskiptavini og ánægju og hæfni starfsfólks.

Í skorkorti stofnunarinnar eru skilgreindir einn eða fleiri mælikvarðar fyrir hvert markmiði og hafa þeir það hlutverk að meta í rauntíma hvernig stofnuninni gengur að ná markmiðum sínum. Skorkortið er aðgengilegt fyrir starfsmenn sem geta þá fylgst með árangri stofnunarinnar varðandi alla eða einstaka mælikvarða. Mælikvarðar eru tengdir við viðkomandi verklagsreglu í gæðahandbók eftir því sem við á.