Gæðakerfi Geislavarna

Gæðakerfi Geislavarna er byggt upp samkvæmt kröfum ISO 9001:2008.
Gæðakerfi Geislavarna er lýst í virkri og útgáfustýrðri rafrænni gæðahandbók sem er aðgengileg öllum starfsmönnum. Gæðakerfið byggir meðal annars á virku ábendingakerfi (sjá Ábendingar hér að ofan) sem tekur á öllum innri og ytri ábendingum sem varða starfsemi Geislavarna.

Gæðakerfi Geislavarna er vottað af bresku staðlastofnuninni, BSI (British Standard Institute). Kerfið var fyrst vottað í október árið 2008 (frétt) og var síðan endurvottað í desember 2009 (frétt), og aftur í nóvember 2010.

Vottunarskýrteini árið 2008

Vottunarskýrteini árið 2009

Stefna

  • Vinna að lögbundnum verkefnum stofnunarinnar af metnaði og hagsýni
  • Reka stofnunina innan ramma fjárveitinga og sértekna
  • Viðhalda vottuðu stjórnkerfi (gæðakerfi) samkvæmt ISO 9001:20008 með áherslu á einfalda og skýra verkferla
  • Hafa faglega vel hæft starfsfólk sem er ánægt í starfi og nær góðum árangri.
  • Auka þekkingu og skilning á geislun og um geislavörnum með ráðgjöf, fræðslu og samstarfi.

Mælingar á starfsemi

Geislavarnir framkvæma mælingar á starfsemi. Geislavarnir setja einnig markmið vegna einstakra mælikvarða og er árangur settur fram í skorkorti.



 

 

 

Fréttir

6.2.2012 Fréttir : Bilun orsök hárra mæligilda í mælistöð Geislavarna í Reykjavík

Undanfarna viku hafa sést nokkrir toppar í mæligögnum frá síritandi og sjálfvirkri geislamælistöð Geislavarna í Reykjavík. Þar sem gögnin eru birt á heimasíðu Geislavarna án tafar hafa þau ekki verið yfirfarin fyrir birtingu, og því geta þau sýnt niðurstöður sem hafa ekkert með dreifingu geislavirkra efna í umhverfi að gera. Sú var reyndin í síðustu viku, en athugun á mæligögnunum og aðrar mælingar sem gerðar voru í Reykjavík á sama tíma sýna ekki aukningu geislunar. Það er niðurstaða Geislavarna að hér hafi verið um bilun í rafeindabúnaði að ræða. Stöðin verður tekin niður og yfirfarin á næstu dögum. Lesa meira
 

23.1.2012 Fréttir : Ný skýrsla: Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010

Geislavarnir ríkisins hafa birt skýrslu þar sem kynntar eru niðurstöður mælinga stofnunarinnar á styrk geislavirks sesíns í andrúmslofti, úrkomu, mjólk, lambakjöti, sjó, fiski og þangi á árinu 2010. Styrkur efnisins er í öllum tilvikum langt neðan þeirra marka sem miðað er við í milliríkjaviðskiptum með matvæli. Skýrsluna "Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010, GR 11:04" má nálgast hér á PDF formi. Lesa meira
 

16.1.2012 Fréttir : Aukning tölvusneiðmyndarannsókna veldur áhyggjum Norrænna geislavarnastofnana

Tölvusneiðmyndarannsóknir eru meðal öflugustu verkfæra læknisfræðinnar og hefur notkun þeirra aukist mjög á Norðurlöndum undanfarin ár. Þeim getur fylgt viss áhætta og því leggja norrænar geislavarnastofnanir áherslu á, í sameiginlegri yfirlýsingu, að ekki séu framkvæmdar aðrar rannsóknir en þær sem líklegar eru til að hafa jákvæð áhrif á heilsu sjúklinga. Lesa meira
 

10.1.2012 Fréttir : Aukið samstarf Samtaka evrópskra geislavarnastofnana við framleiðendur tölvusneiðmyndatækja.

HERCA, Evrópusamtök geislavarnastofnana og COCIR, Evrópusamtök iðnfyrirtækja á sviði heilbrigðistækni, gáfu í gær (9. janúar 2012) út sameiginlega yfirlýsingu um aukið samstarf, með það að markmiði að draga úr geislaálagi sjúklinga við tölvusneiðmyndarannsóknir. Yfirlýsinguna má finna hér. Lesa meira