Fyrir viðskiptavini Geislavarna ríkisins

Gjaldskrá

Með því að velja tengilinn hér fyrir ofan má finna gjaldskrá Geislavarna ríkisins.

Leiðbeiningar

Með því að velja tengilinn hér fyrir ofan má finna þær reglur og leiðbeiningar sem Geislavarnir ríkisins hafa sett.

Lög og reglugerðir

Með því að velja tengilinn hér fyrir ofan má finna lög og reglugerðir sem Geislavarnir ríkisins starfa eftir. Tenging er inn á lögin á heimasíðu Alþingis og inn á reglugerðirnar á reglugerðarvef dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.

Umsóknir og tilkynningar

Með því að velja tengilinn hér fyrir ofan má finna umsóknareyðublöð fyrir viðskiptavini Geislavarna varðandi almenn röntgentæki, röntgentæki fyrir tannlækna, geislavirk efni, reykskynjara og sólarlampa.

Yfirlýsingar

Á undanförnum árum hafa kaupendur erlendis oft beðið útflytjendur íslenskra matvæla að leggja fram yfirlýsingar um að styrkur geislavirkra efna í matvælum frá Íslandi sé neðan marka sem miðað er við í alþjóðlegum viðskiptum. Geislavarnir ríkisins hafa veitt þá þjónustu að gefa út slíkar yfirlýsingar. Þær eru gefnar út á grunni fyrirliggjandi mælinga stofnunarinnar á styrk geislavirkra efna í sýnum úr sjó og sjávarafurðum. Sé hins vegar ekki unnt að byggja yfirlýsinguna á fyrirliggjandi gögnum, þá þarf að mæla vöru sérstaklega. Greitt er fyrir yfirlýsingar og mælingar samkvæmt gildandi gjaldskrá.

 

 

Fréttir

6.2.2012 Fréttir : Bilun orsök hárra mæligilda í mælistöð Geislavarna í Reykjavík

Undanfarna viku hafa sést nokkrir toppar í mæligögnum frá síritandi og sjálfvirkri geislamælistöð Geislavarna í Reykjavík. Þar sem gögnin eru birt á heimasíðu Geislavarna án tafar hafa þau ekki verið yfirfarin fyrir birtingu, og því geta þau sýnt niðurstöður sem hafa ekkert með dreifingu geislavirkra efna í umhverfi að gera. Sú var reyndin í síðustu viku, en athugun á mæligögnunum og aðrar mælingar sem gerðar voru í Reykjavík á sama tíma sýna ekki aukningu geislunar. Það er niðurstaða Geislavarna að hér hafi verið um bilun í rafeindabúnaði að ræða. Stöðin verður tekin niður og yfirfarin á næstu dögum. Lesa meira
 

23.1.2012 Fréttir : Ný skýrsla: Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010

Geislavarnir ríkisins hafa birt skýrslu þar sem kynntar eru niðurstöður mælinga stofnunarinnar á styrk geislavirks sesíns í andrúmslofti, úrkomu, mjólk, lambakjöti, sjó, fiski og þangi á árinu 2010. Styrkur efnisins er í öllum tilvikum langt neðan þeirra marka sem miðað er við í milliríkjaviðskiptum með matvæli. Skýrsluna "Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010, GR 11:04" má nálgast hér á PDF formi. Lesa meira
 

16.1.2012 Fréttir : Aukning tölvusneiðmyndarannsókna veldur áhyggjum Norrænna geislavarnastofnana

Tölvusneiðmyndarannsóknir eru meðal öflugustu verkfæra læknisfræðinnar og hefur notkun þeirra aukist mjög á Norðurlöndum undanfarin ár. Þeim getur fylgt viss áhætta og því leggja norrænar geislavarnastofnanir áherslu á, í sameiginlegri yfirlýsingu, að ekki séu framkvæmdar aðrar rannsóknir en þær sem líklegar eru til að hafa jákvæð áhrif á heilsu sjúklinga. Lesa meira
 

10.1.2012 Fréttir : Aukið samstarf Samtaka evrópskra geislavarnastofnana við framleiðendur tölvusneiðmyndatækja.

HERCA, Evrópusamtök geislavarnastofnana og COCIR, Evrópusamtök iðnfyrirtækja á sviði heilbrigðistækni, gáfu í gær (9. janúar 2012) út sameiginlega yfirlýsingu um aukið samstarf, með það að markmiði að draga úr geislaálagi sjúklinga við tölvusneiðmyndarannsóknir. Yfirlýsinguna má finna hér. Lesa meira