Umsóknir

Geislavirk efni

Nýtt leyfi -Leyfi til innflutnings og notkunar geislavirkra efna

(Skýring á skiptingu í opnar og lokaðar geislalindir)

  1. Opnar geislalindir (reglugerð 809/2003). - Rafræn umsókn
    Séu forsendur leyfisveitingar uppfylltar er leyfi veitt til eins árs og eftir það þarf að sækja um endurnýjun leyfis á eins árs fresti (sjá neðar).

  2. Lokaðar geislalindir (reglugerð 811/2003). - Rafræn umsókn
    Sé skilyrðum fullnægt, m.a. um ábyrgðarmann og fjarlægingu/förgun þegar notkun lýkur, er leyfi veitt til innflutnings og ótímabundinnar notkunar.

Endurnýjun leyfis til innflutnings og notkunar opinna geislalinda

Árlega þarf að endurnýjun leyfi til innflutnings og notkunar opinna geislalinda.
Umsókn skulu fylgja upplýsingar um notkun/innflutning síðasta árs, auk upplýsinga um fyrirhugaða notkun/innflutning ársins. Þessar upplýsingar þurfa að berast frá innflytjendum fyrir 1. mars ár hvert, en frá notendum eigi síðar en 31. mars.
Rarfræn umsókn

Almennt um leyfi:

Leyfi eru gefin út innan sjö virkra daga frá því að tilskildar upplýsingar liggja fyrir.

 

 

Fréttir

9.9.2010 Fréttir : Aukin tíðni sortuæxla tengd ljósabekkjanotkun

Merkar niðurstöður í grein í American Journal of Epidemiology

Lesa meira

 

31.8.2010 Fréttir : 29. ágúst alþjóðlegur dagur gegn tilraunum með kjarnorkuvopn.

Á síðasta ári samþykkti allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna með einróma ályktun að 29. ágúst skyldi verða alþjóðlegur dagur gegn tilraunum með kjarnorkuvopn. Eru aðildarríki þar sérstaklega hvött til að efla vitund fólks og fræðslu um afleiðingar tilraunasprenginga og nauðsyn þess að þeim verði endanlega hætt svo takmarkinu um kjarnorkuvopnalausan heim verði náð. Lesa meira
 

27.8.2010 Fréttir : Segulsvið á Íslandi svipað og í Svíþjóð

Geislavarnir ríkisins og Brunamálastofnun hafa nýlega lokið rannsókn á segulsviði í rúmlega 130 íbúðum. Niðurstöður benda til að segulsviðið í íbúðum á Íslandi sé svipað og í Svíþjóð en frágangur raflagna á Íslandi og í Svíþjóð er sambærilegur. Niðurstöðurnar gefa ekki tilefni til umfangsmeiri rannsókna á segulsviði í íbúðarhúsnæði á Íslandi. Meðaltal segulsviðs mældist um 0,1 µT en algengustu gildi eru um 0,05 µT. Segulsvið yfir 0,4 µT er sjaldgæft og stafar oftast af svokölluðum flökkustraumum. Með einföldum aðgerðum má oftast draga úr þessum straumum. Lesa meira
 

13.8.2010 Fréttir : Fjöldi myndgreiningarannsókna á Íslandi árið 2008

Komin er út skýrsla Geislavarna um fjölda myndgreiningarannsókna sem framkvæmdar voru á Íslandi árið 2008. Skýrslan er áfangi í því verkefni stofnunarinnar að meta geislaálag þjóðarinnar vegna notkunar jónandi geislunar í læknisfræði. Lesa meira