Umsókn vegna vísindarannsókna eða skimunar þar sem notuð er jónandi geislun.

Upplýsingar um umsækjanda

Tækjabúnaður eða geislavirk efni sem notað verður við rannsókn/skimun

Annað:

Senda gögn

Senda / Ljúka skráningu

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn:

  1. Rannsóknarlýsing, þar sem tilgangi og framkvæmd er lýst.
  2. Mat á geislaálagi vegna framkvæmdar rannsóknarinnar, fjöldi þátttakenda ofl.
  3. Eintak af upplýstu samþykki (Stofnunin mun aðstoða við orðalag vegna áhættu við þátttöku í rannsókninni.)
  4. Afrit af leyfi viðkomandi siðanefndar (Þarf ekki að liggja fyrir, en verður þá gert að skilyrði fyrir leyfi.)

Framgangur afgreiðslu: Eftir að umsókn berst með nauðsynlegum gögnum þannig að stofnunin getur lagt mat á geislaálag þátttakenda, er metið hvort upplýsingar og orðalag í upplýstu samþykki sé í samræmi við þetta mat. Mat á áhættu og gagnsemi rannsóknarinnar er miðað við leiðbeiningar ICRP (Publication 62, Radiological Protection in Biomedical Research ) Stofnunin mun í framhaldinu leita álits landlæknis á því hvort leyfi skuli eða skuli ekki veitt og með hvaða skilyrðum þar sem það á við.

(Til að fyrirbyggja ruslpóst)


 

Fréttir

6.2.2012 Fréttir : Bilun orsök hárra mæligilda í mælistöð Geislavarna í Reykjavík

Undanfarna viku hafa sést nokkrir toppar í mæligögnum frá síritandi og sjálfvirkri geislamælistöð Geislavarna í Reykjavík. Þar sem gögnin eru birt á heimasíðu Geislavarna án tafar hafa þau ekki verið yfirfarin fyrir birtingu, og því geta þau sýnt niðurstöður sem hafa ekkert með dreifingu geislavirkra efna í umhverfi að gera. Sú var reyndin í síðustu viku, en athugun á mæligögnunum og aðrar mælingar sem gerðar voru í Reykjavík á sama tíma sýna ekki aukningu geislunar. Það er niðurstaða Geislavarna að hér hafi verið um bilun í rafeindabúnaði að ræða. Stöðin verður tekin niður og yfirfarin á næstu dögum. Lesa meira
 

23.1.2012 Fréttir : Ný skýrsla: Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010

Geislavarnir ríkisins hafa birt skýrslu þar sem kynntar eru niðurstöður mælinga stofnunarinnar á styrk geislavirks sesíns í andrúmslofti, úrkomu, mjólk, lambakjöti, sjó, fiski og þangi á árinu 2010. Styrkur efnisins er í öllum tilvikum langt neðan þeirra marka sem miðað er við í milliríkjaviðskiptum með matvæli. Skýrsluna "Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2010, GR 11:04" má nálgast hér á PDF formi. Lesa meira
 

16.1.2012 Fréttir : Aukning tölvusneiðmyndarannsókna veldur áhyggjum Norrænna geislavarnastofnana

Tölvusneiðmyndarannsóknir eru meðal öflugustu verkfæra læknisfræðinnar og hefur notkun þeirra aukist mjög á Norðurlöndum undanfarin ár. Þeim getur fylgt viss áhætta og því leggja norrænar geislavarnastofnanir áherslu á, í sameiginlegri yfirlýsingu, að ekki séu framkvæmdar aðrar rannsóknir en þær sem líklegar eru til að hafa jákvæð áhrif á heilsu sjúklinga. Lesa meira
 

10.1.2012 Fréttir : Aukið samstarf Samtaka evrópskra geislavarnastofnana við framleiðendur tölvusneiðmyndatækja.

HERCA, Evrópusamtök geislavarnastofnana og COCIR, Evrópusamtök iðnfyrirtækja á sviði heilbrigðistækni, gáfu í gær (9. janúar 2012) út sameiginlega yfirlýsingu um aukið samstarf, með það að markmiði að draga úr geislaálagi sjúklinga við tölvusneiðmyndarannsóknir. Yfirlýsinguna má finna hér. Lesa meira