Umsóknir

Röntgentæki

1. Innflutningur röntgentækja - Tilkynning

Innflutningur röntgentækja er tilkynningaskyldur samkvæmt 3. mgr. 7. gr. laga nr. 44/2002 um geislavarnir.


2. Uppsetning og notkun röngentækja - Rafræn umsókn

Uppsetning og notkun allra röntgentækja er leyfisskyld samkvæmt 9. gr. laga nr. 44/2002 um geislavarnir. Óheimilt er að hefja notkun fyrr en leyfi Geislavarna ríkisins liggur fyrir.
Umsóknina má einnig prenta út, fylla skriflega í viðkomandi reiti og senda til Geislavarna með símbréfi í númer 552 8202.


3. Förgun röntgentækja - Tilkynning

Förgun geislatækja sem gefa frá sér jónandi geislun er tilkynningarskyld samkvæmt 2. mgr. 12. gr. laga nr. 44/2002 um geislavarnir. Ef tæki er fargað þarf að tilkynna það til Geislavarna svo hægt sé að afskrá tækið. Bent er á að skráður eigandi tækis greiðir eftirlitsgjöld samkvæmt gjaldskrá, sbr. 19. gr laga nr. 44/2002 þar til Geislavörnum hefur verið tilkynnt um förgun tækis. Nánari leiðbeiningar um förgun.


4. Eigendaskipti röntgentækja - Tilkynning

Tilkynna ber til Geislavarna um eigendaskipti röntgentækja, sbr. 8. gr. reglugerðar nr. 640/2003 og 8. gr. reglugerðar nr. 626/2003.